Enn tefur brunavörn enduropnun Brákarborgar

Ljósmynd: Polesie Toys / Pexels
Ljósmynd: Polesie Toys / Pexels

Framkvæmdum við leikskólann Brákarborg hefur enn og aftur verið frestað vegna galla sem komu í ljós, en upphaflega átti að ljúka þeim í síðasta mánuði. Reykjavíkurborg staðfestir að nokkrar rúður við inngang hússins uppfylli ekki ströngustu brunakröfur og verður þeim skipt út snemma í sumar.

Borgin segir að um sé að ræða mistök frá því húsið var upphaflega endurgert. Leikskólinn hefur ítrekað verið í fréttum vegna tafa á framkvæmdum frá því Reykjavíkurborg keypti húsnæðið, sem áður hýsti kynlífstækjaverslunina Adam og Evu, í lok árs 2021. Eftir miklar breytingar flutti leikskólinn inn í ágúst 2022.

Umfangsmiklar viðgerðir

Aðeins tveimur árum síðar, síðsumars 2024, komu í ljós alvarlegir byggingargallar sem kröfðust umfangsmikilla viðgerða. Enduropnun Brákarborgar hefur því ítrekað verið frestað þar sem verkið reyndist mun viðameira en upphaflega var talið. Stefnt var að því að hefja starfsemi að nýju að loknu sumarleyfi 2025, en sú tímasetning stóðst ekki.

Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg er nú stefnt að því að taka húsnæðið aftur í notkun í sumar eða í síðasta lagi við upphaf næsta skólaárs í ágúst.

Sjá nánar: mbl.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →