Lóðaleit Tækniskólans heldur áfram eftir vanefndir Hafnarfjarðar

Tækniskólinn leitar nú að lóð fyrir nýtt skólahúsnæði eftir að samkomulag við Hafnarfjarðarbæ rann út í sandinn vegna vanefnda bæjarins. Upphaflega stóð til að byggja 30.000 fermetra skólahús við Flensborgarhöfn í Suðurbæ Hafnarfjarðar. Áform um bygginguna voru kynnt fyrir rúmum fimm árum

Enn bætist í hóp þeirra sem vilja Tækniskólann í sinn bæ
Mynd: needpix.com (CC0)

Tækniskólinn leitar nú að lóð fyrir nýtt skólahúsnæði eftir að samkomulag við Hafnarfjarðarbæ rann út í sandinn vegna vanefnda bæjarins. Upphaflega stóð til að byggja 30.000 fermetra skólahús við Flensborgarhöfn í Suðurbæ Hafnarfjarðar. Áform um bygginguna voru kynnt fyrir rúmum fimm árum og deiliskipulag fyrir svæðið, sem að mestu byggir á skólanum, var samþykkt í sumar.

Fjöldi sveitarfélaga hefur boðið Tækniskólanum lóðir, þar á meðal Reykjavíkurborg, Mosfellsbær, Reykjanesbær, Akranes, Selfoss, Akureyri, Húsavík, Borgarfjörður, Skorradalshreppur og Múlaþing. Stjórnarformaður Tækniskólans, Egill Jónsson, segir að þótt þakklæti sé fyrir áhugann, sé óraunhæft að staðsetja skólann langt utan höfuðborgarsvæðisins. Hann nefnir að jafnvel Hafnarfjörður hafi þótt vera í útjaðri höfuðborgarsvæðisins.

Skólinn hefur einnig átt í óformlegu samtali við Garðabæ um mögulega staðsetningu. Egill Jónsson segir að undirbúningsvinna og kostnaður sem til féll í Hafnarfirði muni nýtast að langstærstum hluta, óháð framtíðarstaðsetningu skólans. Tækniskólinn hefur áætlað þær upphæðir sem fóru í súginn og hyggst krefjast endurgreiðslu frá Hafnarfirði.

→ Lesa upprunalegu fréttina á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn