Endurnýjun flísa í lendingarlaug Lágafellslaugar

Vinna við endurnýjun flísa í lendingarlaug Lágafellslaugar hefst 14. september og mun standa í allt að átta vikur. Á meðan verður lendingarlaugin og rennibrautir lokaðar.

Endurnýjun flísa í lendingarlaug Lágafellslaugar
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Vinna við endurnýjun allra flísa í lendingarlaug Lágafellslaugar hefst mánudaginn 14. september. Áætlað er að framkvæmdirnar taki allt að átta vikur og á meðan verður lendingarlaugin og rennibrautirnar lokaðar.

Þessi áfangi er hluti af kerfisbundinni endurnýjun mannvirkisins en Lágafellslaug verður 20 ára á næsta ári. Framkvæmdin felur í sér að eldri flísar verða fjarlægðar, undirlag lagfært og endurnýjað eftir þörfum og nýjar flísar lagðar í allt lendingarlaugarkerið.

Samhliða þessu verður hitaþráður lagður við grænu rennibrautina til að hægt sé að halda henni opinni í frosti. Ákveðið var að ráðast í framkvæmdina að loknu sumri þar sem áætlaður framkvæmdatími, allt að átta vikur, var talinn of langur yfir þann tíma ársins þegar notkun rennibrauta er mest.

Til að bjóða upp á afþreyingu á meðan framkvæmdum stendur verður Wipeout-braut sett upp í lauginni alla laugardaga frá kl. 10:00 til 14:00.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Mosfellsbær

Heimild: Mosfellsbær

Deila Facebook X LinkedIn