Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi

Endurnýjaðar rennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru teknar í notkun síðdegis í dag. Gömlu brautirnar, sem voru tæplega 30 ára gamlar, voru fjarlægðar fyrr á árinu til endurbóta.

Endurnýjaðar rennibrautir teknar í notkun í Borgarnesi
Mynd: Braggi.is

Endurnýjaðar rennibrautir við sundlaugina í Borgarnesi voru teknar í notkun síðdegis í dag.

Gömlu brautirnar, sem voru tæplega 30 ára gamlar, voru fjarlægðar fyrr á árinu til að rýma fyrir endurbótum. Við framkvæmdirnar var allt trefjaplast í brautunum endurnýjað, en stoðir mannvirkisins voru lagfærðar og endurnýttar.

Vígsla rennibrautanna fór fram með viðhöfn þar sem fulltrúar ungu kynslóðarinnar drógu spil til að ákvarða röð í fyrstu ferðina. Fulltrúar flokkanna í sveitarstjórn stýrðu viðburðinum ásamt Unni Brá Konráðsdóttur sveitarstjóra.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn

Heimild: Skessuhorn

Deila Facebook X LinkedIn