Endurleggja malbik á Skógarlund á Akranesi

Búið er að fletta malbiki af 350 metra löngum kafla á Skógarlundi í Skógarhverfi á Akranesi vegna aflögunar í malbikinu. Um nýja götu er að ræða þar sem misfellur komu fram eftir að verkframkvæmdum lauk, meðal annars stóðu brunnlok upp úr götunni. Lá

Endurleggja malbik á Skógarlund á Akranesi
Mynd: pxhere.com/ / CC0 / Pexels

Búið er að fletta malbiki af 350 metra löngum kafla á Skógarlundi í Skógarhverfi á Akranesi vegna aflögunar í malbikinu. Um nýja götu er að ræða þar sem misfellur komu fram eftir að verkframkvæmdum lauk, meðal annars stóðu brunnlok upp úr götunni. Lárus Ársælsson, umhverfisstjóri hjá Skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, segir að gallarnir megi rekja til vinnslu undirlags.

Verktakinn, Borgarverk, lagði til að fletta malbikinu af, þjappa undirlagið vandlega, hæðarsetja og malbika upp á nýtt, allt á eigin kostnað. Akraneskaupstaður féllst á tillöguna en ákvað að bíða í einn vetur til að fylgjast með frekari aflögun, sem ekki gerðist. Framkvæmdir hófust í maí og verður malbikið lagt á götuna í framhaldinu.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn

Heimild: Skessuhorn

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →