Endurbygging stríðsárasafnsins á Reyðarfirði vel á veg komin

Endurbygging Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði er langt komin eftir mikið foktjón árið 2022. Nýjar sýningar verða settar upp í stað þeirra sem eyðilögðust.

Endurbygging stríðsárasafnsins á Reyðarfirði vel á veg komin
Mynd: Marcus Reubenstein (Unsplash)

Framkvæmdir við endurbyggingu Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði eru langt komnar. Mikið foktjón varð á safninu árið 2022 þegar tveir braggar gjöreyðilögðust. Nú rísa braggar í þeirra stað.

Safnið hefur verið starfrækt frá 1995 og fræðir um hersetu Breta og Bandaríkjamanna á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni, en ein aðalbækistöð þeirra var á Reyðarfirði.

Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður safnsins og menningarstofu Fjarðabyggðar, segir að þrátt fyrir að sýningar hafi verið til staðar frá stofnun, hafi þær staðið óbreyttar fram til þessa. „Þess vegna var einstakt tækifæri við tjónið að endurhugsa og endurhanna nýjar sýningar út frá þessum safnkosti sem við eigum,“ segir Þórhildur.

„Þetta er búið að ganga mjög hratt fyrir sig og hefur verið sameinað átak hjá okkur í Fjarðabyggð og bæjarstjórn.“

Á morgun verður opinn fundur í bragganum sem staðið hefur alla tíð, þar sem gestir fá innsýn inn í hugmyndavinnuna. Sara Hjördís Blöndal hannar nýju sýninguna.

„Upp á síðkastið hefur vinnan aðallega falist í því að fara yfir safnkostinn og fara í gegnum geymslurnar, sjá hvað er til og púsla þannig saman sýningu,“ segir Sara. „Það er ótrúlegt að sjá þetta allt að byggjast upp hérna aftur og það verður mjög gaman að hitta fólk á fundinum.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn