Endurbætur í eldhúsi Hofgarði – Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í endurbætur í eldhúsi Hofgarði og er skilafrestur til 29. maí 2026 kl. 14:00.
Sveitarfélagið Hornafjörður, verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Endurbætur í eldhúsi Hofgarði“. Útboðsnúmer er 202604062. Útboðsgögn voru afhent 13. maí 2026 kl. 00:00. Skilafrestur er 29. maí 2026 kl. 14:00.
Verkið felur í sér rif og förgun á núverandi eldhúsi og eldhústækjum, rif á gólfefnum og veggjum, sögun á vegg milli eldhúss og uppvöskunarrýmis og fjarlægingu á hlöðnum vegg. Einnig er um að ræða sögun á gólfum fyrir nýjar fráveitu-, raf- og gólfhitalagnir, og rif á hurð og lúgu milli eldhúss og salar.
Nýr milliveggur verður settur upp til hólfunar á geymslu, ný gólfefni og hljóðvistarloft. Uppsetning á nýrri eldhúsinnréttingu og eldhústækjum ásamt uppvöskunarlínu. Nýjar hillur og rekkar verða settir upp. Nýjar lagnir, þar á meðal raflagnir, fráveitulagnir, vatnslagnir og hitalagnir í gólf. Nýr útsogsháfur verður settur upp með tilheyrandi útkast- og inntaksristum á þaki og frágangi og þéttingum á þeim.
Framkvæmd skal hefjast strax eftir undirritun samnings og vera að fullu lokið 30. september 2026. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði. Tilboð verða opnuð samtímis í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is