Endurbætur á stígum meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram
Framkvæmdir við stíga meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram, en nú er komið að kaflanum frá Laufási yfir að Álftanesvegi. Verkefnið er á vegum Betri samgangna og felur í sér endurnýjun á hluta núverandi stíga og lagningu nýs stígs samhliða, þar sem a
Framkvæmdir við stíga meðfram Hafnarfjarðarvegi halda áfram, en nú er komið að kaflanum frá Laufási yfir að Álftanesvegi. Verkefnið er á vegum Betri samgangna og felur í sér endurnýjun á hluta núverandi stíga og lagningu nýs stígs samhliða, þar sem aðskildar leiðir verða fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Jafnframt verða sett upp ný skilti og lýsing endurnýjuð við stígana. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki í desember 2026. Á meðan á lokun stendur vegna framkvæmda verður hjólandi og gangandi umferð beint um hjáleið við framkvæmdasvæðið. Stígaframkvæmdir við Arnarnesbrú standa einnig yfir, en áætluð verklok á þeim kafla eru í lok sumars.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær