Endurbætur á leikvelli við Furuás
Endurbætur á leikvelli við Furuás í Ásahverfi eru í fullum gangi og er áætlað að framkvæmdum ljúki í lok sumars. Leikvöllurinn hefur verið endurhannaður með yngri börn í huga.
Framkvæmdir við endurbætur á leikvelli við enda Furuáss í Ásahverfi hófust í sumar. Leikvöllurinn hefur verið endurhannaður með yngri börn í huga og verður þar sett upp bekkur og borð.
Hringlaga form leiksvæðisins verður látið halda sér, ásamt núverandi grjóthleðslu og runnabeði ofan við hleðsluna. Grjóthleðslan rammar svæðið inn og virkar sem hindrun fyrir minni börn. Leiktækjaval og yfirborðsefni er ætlað að tryggja gott flæði í gegnum leiksvæðið. Að öðru leyti er skipt um leiktæki, undirlag, önnur yfirborðsefni og gróður.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki í lok sumars. Á meðan framkvæmdir standa yfir er leiksvæðið alveg lokað og afgirt. Göngustígurinn norðan við leiksvæðið er opinn og aðgengi frá Furuás er einnig opið, auk þess sem hægt er að vera á grasfletinum sunnan við leikvöllinn.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær