Endurbætur á Hjúkrunarheimilinu Höfn, Hornafjörður

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskar eftir tilboðum í endurgerð á Hjúkrunarheimilinu Höfn á Víkurbraut 29, með skilafresti 20. ágúst 2026.

Endurbætur á Hjúkrunarheimilinu Höfn, Hornafjörður
Mynd: Peter Dyllong / Pexels

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), kt. 510391-2259, fyrir hönd verkkaupa Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins (FRN), kt. 521218-0610, óskar eftir tilboðum í endurgerð á núverandi hjúkrunarheimili að Víkurbraut 29, Höfn í Hornafirði.

Útboðsnúmer verkefnisins er 6087065. Útboðsgögn verða afhent frá og með 3. júlí 2026 kl. 12:52. Skilafrestur tilboða er til 20. ágúst 2026 kl. 12:00. Tilboð verða opnuð 20. ágúst 2026 kl. 13:00.

Um er að ræða almennt útboð eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) og grein 1.2.2 í ÍST 30:2012. Útboð þetta er aðeins auglýst innanlands. Nákvæm lýsing á eðli og umfangi þeirrar vöru/þjónustu sem óskað er eftir í þessu útboði er tilgreint í útboðsgögnum.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →