Endurbætur á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar
Gríðarmiklar framkvæmdir fara nú fram á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar til að tryggja nemendum og starfsfólki góða aðstöðu fyrir nýtt skólaár. Á Siglufirði verður múrviðgerðum lokið, húsið málað og nýr frágangur á inngöngum og lýsingu settur upp. Í Ólafsfirði er unnið að endurnýjun á g
Miklar framkvæmdir standa nú yfir á báðum starfsstöðvum Grunnskóla Fjallabyggðar. Markmiðið er að bæta aðstöðu nemenda og starfsfólks fyrir upphaf nýs skólaárs í ágúst.
Á Siglufirði er unnið að viðgerð á múrskemmdum utanhúss og í kjölfarið verður skólabyggingin máluð að utan. Jafnframt verður endurnýjað gólfefni í inngangi norðanmegin, þar sem epoxy-gólf kemur í stað dúks. Einnig verða inngangshurðir á norður- og suðurhlið skólans endurnýjaðar. Allri lýsingu í skólanum hefur verið skipt út og ný LED-ljós með dimmurum hafa verið sett upp í kennslustofum. Berg ehf. sér um múrviðgerðir og framkvæmdir við anddyri skólans á Siglufirði, L7 annast málningarvinnuna og Ingvi Óskar hefur séð um uppsetningu nýju LED-lýsingarinnar.
Í Ólafsfirði verður skipt um gólfdúk í matsal skólans og gólf flotuð. Nýr dúkur verður lagður í kennslurými sem áður voru þrjár stofur en síðar sameinaðar í tvær. Einnig verður ráðist í málningarvinnu og annað smærra viðhald á húsnæðinu. Dúkarinn og Trésmíði ehf., undir stjórn Harðar Óla, annast stærstan hluta framkvæmdanna í Ólafsfirði. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki fyrir upphaf skólaársins í ágúst.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Trölli
Heimild: Trölli