Eldsvoði á Fröken Selfoss
Eldur kviknaði á veitingastaðnum Fröken Selfoss í miðbæ Selfoss í morgun. Reykkafarar frá Brunavörnum Árnessýslu slökktu eldinn en reykræsting tók talsverðan tíma. Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, sagði að eldurinn hefði ekk
Eldur kviknaði á veitingastaðnum Fröken Selfoss í miðbæ Selfoss í morgun. Reykkafarar frá Brunavörnum Árnessýslu slökktu eldinn en reykræsting tók talsverðan tíma.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, sagði að eldurinn hefði ekki verið mikill en gríðarlegur reykur. Iðnaðarmenn í miðbænum urðu varir við reyk úr lofttúðu um klukkan 8 í morgun og tilkynntu um eldinn. Veitingastaðurinn var alveg fullur af reyk þegar slökkvilið kom á staðinn.
Tjón vegna elds var ekki mikið en búist er við miklu hreinsunarstarfi vegna sóts og reykskemmda. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar upptök eldsins.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska
Heimild: Sunnlenska