Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
Ráðuneyti félags- og húsnæðismála hefur rætt við aðila vinnumarkaðarins um mögulegar aðgerðir tengdar húsnæðismarkaði, brotastarfsemi og einföldun regluverks. Félags- og húsnæðismálaráðherra telur eðlilegt að ríkið taki þátt í slíku samtali.
Ráðuneyti félags- og húsnæðismála hefur verið í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins síðan í vor, þegar ljóst var í hvað stefndi varðandi kjarasamninga. Forsendur þeirra samninga rýrnuðu í byrjun mánaðar þegar verðbólga mældist yfir viðmiði.
Ýmsar aðgerðir eru nú til skoðunar, meðal annars aðgerðir sem snúa að húsnæðismarkaðnum, sérstaklega leigumarkaðnum, og aðgerðir sem tengjast brotastarfsemi á vinnumarkaði, einföldun á regluverki og fleiri mál.
Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að aðgerðirnar á húsnæðismarkaði snúi að ungu fólki og sérstaklega leigumarkaðnum. Hvort af þeim verði veltur á því hvort aðilar nái saman.
Efnahags- og fjármálaráðherra lét í gær að sér þætti furðulegt fyrirkomulag að ríkið niðurgreiddi kjarasamninga á almennum markaði. Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að hann hafi verið þeirrar skoðunar að ríkið eigi að vera aðili samninga, enda hafi það verið þannig síðustu ár og áratugi. Hann tekur undir gagnrýni á að ríkið eigi ekki að niðurgreiða samninga sem slíka, en telur ekkert óeðlilegt að hið opinbera sé hluti af samtali þegar margt sem snýr að velferð og kjörum fólks er undir.
Félags- og húsnæðismálaráðherra, sem er fyrrverandi formaður VR og átti þátt í gerð Stöðugleikasamningsins, segir að ef hann væri enn í formannsstóli myndi hann gera allt sem hann gæti til að verja samninginn.
Varðandi boðuð hallalaus fjárlög sem verða kynnt í vikunni, segir ráðherra að það verði ekki á kostnað þeirra fari svo að ríkisstjórnin grípi til einhverra aðgerða til að verja kjarasamningana.
Heimild: RÚV