Eitt tilboð barst og framkvæmdum frestað

Akraneskaupstaður hefur ákveðið að fresta framkvæmdum á lóð Grundaskóla eftir að einungis eitt tilboð barst í útboðið og var það langt umfram kostnaðaráætlun.

Eitt tilboð barst og framkvæmdum frestað
Mynd: Braggi.is

Akraneskaupstaður hefur hafnað eina tilboðinu sem barst í framkvæmdir á lóð Grundaskóla og ákveðið að fresta verkefninu.

Tilboðið, sem var frá Lóðaþjónustunni ehf., hljóðaði upp á 31,7 milljónir króna. Það var umtalsvert hærra en kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar, sem var tæplega 24 milljónir króna, eða tæplega 33% yfir áætlun.

Skipulags- og umhverfisráð Akraness ákvað því að hafna tilboðinu. Ráðið leggur áherslu á að teknar verði saman heildarbreytingar sem fyrirhugaðar eru á lóðinni.

Í framhaldinu verður horft til þess að bjóða verkið út í heild á því tímabili sem ákveðið verður við gerð fjárhagsáætlunar.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skagafréttir

Heimild: Skagafréttir

Deila Facebook X LinkedIn