40 fermetra einbýli frá 2020 á tæplega hektara lóð til sölu
40 fermetra einbýlishús við Vaðstíg 3 í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið sett á sölu. Húsið var byggt árið 2020 og stendur á 9.300 fermetra eignarlóð sem er skráð sem íbúðarhúsalóð. Ásett verð er 35 milljónir króna.

Eignin er með heitum potti og litlu útihúsi á lóðinni, auk þess sem hitaveita er á svæðinu. Húsið sjálft er með eldhúsi, borðstofu, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með þvottavélaraðstöðu.
Lóðin er tæplega einn hektari að stærð, eða um 230 sinnum stærri en húsið sjálft. Ásett verð jafngildir 875 þúsund krónum á hvern fermetra hússins.