Einkabíllinn vinsælastur á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri könnun

Ljósmynd: Raunaq Singh / Pexels
Ljósmynd: Raunaq Singh / Pexels

Nýjar niðurstöður úr Gallup-könnun sýna að einkabíllinn er áfram ríkjandi ferðamáti á höfuðborgarsvæðinu, en þeim sem kjósa hann hefur fjölgað á undanförnum árum. Könnunin var kynnt á ráðstefnu um samgöngumál í morgun.

Um helmingur íbúa höfuðborgarsvæðisins ferðast helst sem bílstjóri í einkabíl, sem er 7% aukning frá árinu 2019. Aðeins 17% ferðast sem farþegar. Þá kemur fram að fæstir telja að lausnir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins muni breyta ferðavenjum þeirra, en 57% telja að breytingarnar verði litlar og 66% hafa ekki trú á að áætlanir hans standist.

Konráð Guðjónsson hagfræðingur hjá Kontext kynnti niðurstöðurnar og benti á að umferð um höfuðborgarsvæðið þyngist stöðugt. Frá árinu 2019 hefur bílum fjölgað um 50 á viku, fólki um 80 og skráðum ökutækjum um 60. Að meðaltali eru 1,6 bílar á hverju heimili á svæðinu.

Sjá nánar: fibfrettir.is

Deila Facebook X LinkedIn

Aðrar fréttir

📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →