Eik og Landsbyggð skipuleggja endurbætur á Kvosinni í miðborg Reykjavíkur
Eik fasteignafélag og Landsbyggð þróunar- og fasteignafélag ætla að byggja upp lifandi borgarrými í Kvosinni norðan Austurstrætis í miðborg Reykjavíkur. Félögin hafa tekið höndum saman um mótun framtíðarsýnar fyrir svæðið og horfa á byggingar og borgarrými í eigu þeirra sem eina heild.

Í fréttatilkynningu frá Eik kemur fram að kannað verði hvernig hægt sé að tengja svæði og byggingar betur saman, styrkja gönguleiðir í gegnum Kvosina og skapa ný og skjólgóð almenningsrými. Markmiðið er að finna sameiginlegar lausnir sem geta styrkt allt svæðið, í stað þess að vinna með einstaka byggingarreiti.
Áhersla er lögð á skýrari og aðgengilegri gönguleiðir, virkari jarðhæðir og rými þar sem fólk getur dvalið. Opnari tengingar milli gatna munu skapa tækifæri til að draga fólk inn á svæðið og inn í byggingar sem áður voru ekki opnar almenningi. Júlía Brekkan hjá Eik fasteignafélagi segir mikilvægt að framtíðarsýnin byggi á sérkennum og gæðum svæðisins.
Verkefnið verður kynnt á sýningu sem er opin öllum í gamla Landsbankahúsnæðinu við Austurstræti 11 á laugardaginn 22. ágúst frá klukkan 12-18. Eik og Landsbyggð vinna að verkefninu í samráði við Reykjavíkurborg, Batteríið arkitekta og Minjastofnun. Landsbyggð festi kaup á Landsbankahúsinu og húseignum við Hafnarstræti á síðasta ári.