„Eftir hrun hafa stýrivextir aldrei verið jafn háir og einmitt núna“
Prófessor í hagfræði telur óráðlegt að hækka stýrivexti frekar, þar sem það gæti haft neikvæð áhrif á hagkerfið, heimili, fyrirtæki og byggingariðnaðinn. Stýrivextir eru nú hæstir frá hruni.
Prófessor í hagfræði telur að frekari hækkun stýrivaxta sé röng ákvörðun. Hærri vextir gætu dregið óþarflega úr hagkerfinu og haft slæm áhrif á heimili, fyrirtæki og byggingariðnaðinn.
Greiningaraðilar telja flestir að stýrivextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig á miðvikudag, í 8%, þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína. Miðað við verðbólguvæntingar er útlit fyrir að raunstýrivextir verði 4% eftir ár.
Már Wolfgang Mixta, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir líklegt að stýrivextir verði hækkaðir á miðvikudag. Þá fari álag stýrivaxta á verðbólgu upp í 2,7% miðað við síðustu verðbólgumælingu, sem er vel yfir meðaltali.
„Eftir hrun hafa stýrivextir aldrei verið jafn háir og einmitt núna og síðustu tólf mánuði. Þannig að stýrivaxtaálagið er alveg hreint gríðarlegt þessa stundina,“ segir Már.
„Þó svo að verðbólga hér væri aðeins yfir meðaltali og hafi valdið vonbrigðum hefur munurinn á verðbólgu hér og erlendis engu að síður hjaðnað síðustu tvö ár. Þannig að þó svo að það væri betra að hafa verðbólguna lægri hefur hún engu að síður ekki verið alslæm miðað við þróunina erlendis.“
Már segir ástandið í byggingariðnaði sérlega slæmt. Verktakar sitji margir hverjir á óseldum íbúðum og eigi erfitt með að losa sig við þær.
„Þeir eru í slæmri stöðu og það er erfitt fyrir suma að lækka verðin verulega því að bæði hefur byggingarkostnaður aukist og auk þess eru stýrivextirnir að bíta efnahagsreikning þessara verktaka afar illilega af því að þeir sitja með þessar tómu íbúðir.“
Spurður hvort aðrar leiðir standi til boða til að sporna gegn verðbólgu segir Már svo vera.
„Það er í raun og veru bara aðhald og samdráttur og í
Heimild: RÚV