Draga steypubílinn upp í dag – brúin lokuð næstu daga
Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöldi verður dreginn upp í dag. Brúin verður lokuð næstu daga vegna viðgerða á handriði.
Steypubíll sem fór út af brú yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun í gærkvöldi verður dreginn upp úr ánni í dag. Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, staðfestir þetta. Brúin er lokuð á meðan unnið er að viðgerðum á handriði hennar, sem fór að hluta af brúnni við slysið.
Ökumaðurinn, sem er starfsmaður Steyðustöðvarinnar á Selfossi, var einn á ferð og hafði nýlokið við steypuvinnu þegar slysið varð. Tromla bílsins var því tóm. Hann komst upp á hlið bílsins eftir að hann hafnaði í ánni. Hann ofkældist en slasaðist ekki að öðru leyti. Maðurinn hringdi ekki sjálfur á hjálp, heldur barst tilkynning til Neyðarlínunnar frá þriðja aðila. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti ökumanninn og flutti hann á sjúkrahús.
Ekki er vitað hvað olli því að bíllinn fór út af brúnni. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar slysið ásamt rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Heimild: RÚV