Deiliskipulag við Njarðvíkurhöfn á lokastigi
Vinna við nýtt deiliskipulag fyrir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn er senn á lokastigi hjá Reykjaneshöfn. Málið var tekið fyrir á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar þann 12. nóvember, þar sem einnig var farið yfir stöðu á vinnu við aðal- og dei
Vinna við nýtt deiliskipulag fyrir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn er senn á lokastigi hjá Reykjaneshöfn. Málið var tekið fyrir á fundi atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar þann 12. nóvember, þar sem einnig var farið yfir stöðu á vinnu við aðal- og deiliskipulag í og við höfnina.
Samhliða þessu hefur eigandi fasteignarinnar við Sjávargötu 38 óskað eftir stækkun á lóð sinni ásamt breytingum á húsnæðinu. Skipulagsráð hefur samþykkt að senda þá málaleitun í grenndarkynningu.
Reykjaneshöfn fer með eignarhald á landinu á þessu svæði. Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemd við umbeðna lóðarstækkun við Sjávargötu, svo lengi sem hún samræmist nýja deiliskipulaginu sem er í vinnslu og falli að nærliggjandi lóðum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkurfréttir
Heimild: Víkurfréttir