Deiliskipulag Borgarlínu um Suðurlandsbraut í auglýsingu

Tillaga að deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut er nú komin í auglýsingu, en skipulagssvæðið nær frá gatnamótum við Skeiðarvog og að Lágmúla. Í gegnum skipulagssvæðið er gert ráð fyrir tveimur Borgarlínu sérakreinum fyrir miðju, hjóla- og gön

Deiliskipulag Borgarlínu um Suðurlandsbraut í auglýsingu
Mynd: Braggi.is / Pexels

Tillaga að deiliskipulagi Borgarlínu um Suðurlandsbraut er nú komin í auglýsingu, en skipulagssvæðið nær frá gatnamótum við Skeiðarvog og að Lágmúla. Í gegnum skipulagssvæðið er gert ráð fyrir tveimur Borgarlínu sérakreinum fyrir miðju, hjóla- og göngustígum sunnan Borgarlínubrauta og akreinar fyrir bílaumferð verða að mestu leyti einbreiðar. Einnig verður aðkomu bíla og bílastæða breytt.

Deiliskipulag er lykilforsenda þess að framkvæmdir geti hafist, en skipulagsáætlanir skilgreina meðal annars hvernig umhverfið mótast, hvar stöðvar verða staðsettar og hvernig vegfarendur fara um svæðin. Nú þegar er búið að samþykkja níu deiliskipulagsáætlanir þar sem gert er ráð fyrir Borgarlínu. Þær ná yfir Fossvogsbrú, Nauthólsvík, Háskólann í Reykjavík, Nauthólsveg, Nýja Landspítalann, Hlemm, efri hluta Laugavegar og tvo hluta Ártúnshöfða. Fyrsta lota Borgarlínu sem liggur á milli Ártúnshöfða og Hamraborgar um Fossvogsbrú nær yfir 12 kílómetra í Reykjavík en heildarlengd hennar eru 15 kílómetrar.

Helstu breytingar á Suðurlandsbraut fela í sér að bætt verður við Borgarlínubrautum milli Skeiðarvogar og Lágmúla ásamt þremur stöðvum; við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla. Hjóla- og göngustígum verður bætt við sunnan Borgarlínubrauta en núverandi stígar norðan megin haldast óbreyttir. Akreinar fyrir almenna bílaumferð verða að mestu leyti einbreiðar, nema við stærri gatnamót þar sem geta verið viðbótarakreinar vegna beygjustrauma. Græn ásýnd gatna er aukin með skilgreindum svæðum fyrir gróður og regnvatnslausnir ofanjarðar. Aðkomu bíla og bílastæða við Suðurlandsbraut 4-32 verður breytt.

Deiliskipulagsbreytingin felur í sér endurskipulagningu gatnamóta á Suðurlandsbraut með það að markmiði að bæta umferðaröryggi, auka greiðfærni Borgarlínu og bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi. Þetta hefur í för með sér nokkrar breytingar á umferðarmynstri og aðgengi á svæðinu.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan

Heimild: Borgarlínan

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →