Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Birkihólum
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Birkihólum með skilafrest 27. júlí 2026.
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í gatnagerð í Birkihólum, sem er ný 70 metra löng botnlangagata út úr Skógarhólum ofan Lynghóla. Útboðsnúmer er 2026003. Verkið felst í brottflutningi á jarðvegi og jarðvegsskiptum auk lagningar á veitulögnum og tenginga við núverandi kerfi. Einnig felst í verkinu malbikun á götu og uppsetning á götulýsingu. Markmið verksins er að gera lóðir við götuna byggingarhæfar. Helstu magntölur eru 200 metrar af fráveitulögnum, 4 brunnar, 3 ný niðurföll, 150 metrar af kaldavatnslögnum, 120 metrar af hitaveitulögnum og 7 ljósastólpar. Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026 með fyrirvara um að leyfismál tefji ekki fyrir verkáætlun verktaka. Unnið er að frágangi leyfismála. Fyrirspurnartíma lýkur 20. júlí 2026 og rennur svarfrestur fyrirspurna út 22. júlí 2026. Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 mánudaginn 27. júlí 2026 á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða á pappír á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is