Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á Böggvisbraut suður
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á Böggvisbraut suður, en skilafrestur er til 27. júlí 2026.
Dalvíkurbyggð óskar eftir tilboðum í endurnýjun á Böggvisbraut suður, númer 2026002. Verkið felst í endurnýjun á syðstu 220 metrum Böggvisbrautar, frá Mímisvegi og suður úr. Á þessum kafla á að endurnýja núverandi fráveitulagnir, tvöfalda fráveitukerfið og tengja fráveitukerfinu. Í verkinu felst einnig endurnýjun á 30 cm burðar- og jöfnunarlagi götunnar og endurnýjun á malbikuðu yfirborði, auk endurnýjunar á gangstétt og kantsteini austan götu. Helstu magntölur eru upprif á 210 metrum af kantsteini og nýr kantsteinn í sömu lengd. Fráveituvinna felur í sér 560 metra af fráveitulögnum, 11 brunna, 8 ný niðurföll og fjarlægingu á 295 metrum af eldri lögnum. Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2026. Tilboðum skal skila fyrir kl. 14:00 mánudaginn 27. júlí 2026 á netfangið dalvikurbyggd@dalvikurbyggd.is eða á pappír á skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsinu á Dalvík.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is