Dalvík – Norðurgarður: Útboð á raforkuvirkjum 2026
Vegagerðin býður út framkvæmdir við raforkuvirki á Norðurgarði á Dalvík, með skilafresti til 28. apríl 2026.
Vegagerðin hefur boðið út framkvæmdir við raforkuvirki á Norðurgarði á Dalvík, með útboðsnúmerið 26-082. Verkinu skal lokið eigi síðar en í júní 2026.
Helstu verkþættir eru ídráttur strengja, uppsetning og tenging rafbúnaðar í tenglaskápum, uppsetning og tenging aðaltöflu í rafbúnaðarhúsi, uppsetning og tenging masturs- og stigaljósa, ídráttur strengja og tenging rafbúnaðar, rafbúnaður í töflur/tenglaskápa, tenging og uppsetning lampa í ljósamöstur, tenging og uppsetning stigaljósa og lagning raflagna í masturshús.
Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu án endurgjalds frá og með 14. apríl 2026. Skilafrestur tilboða er 28. apríl 2026 kl. 14:00. Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur, en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is