COWI leitar að sérfræðingi í útboðsgerð fyrir stór innviðaverkefni

Ljósmynd: ThisIsEngineering / Pexels
Ljósmynd: ThisIsEngineering / Pexels

COWI á Íslandi hefur auglýst eftir sérfræðingi í innkaupum og gerð útboðs- og verklýsinga fyrir verklega framkvæmdir. Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum á sviði samgangna, veitna og mannvirkjagerðar, en deildin sem um ræðir samanstendur af um 20 sérfræðingum.

Meðal lykilþátta starfsins eru gerð verðfyrirspurna- og útboðsgagna, kostnaðaráætlanir og eftirlit, auk samningagerðar og reksturs samninga. Æskilegt er að umsækjendur hafi verk-, tækni- eða iðnfræðimenntun og reynslu af gerð útboðsgagna fyrir innkaup og verklegar framkvæmdir. Þekking á stöðlum eins og ÍST 30, ÍST 35, FIDIC og AACE er talin kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí. COWI, sem starfrækir skrifstofur í 35 löndum og hefur um 7.500 starfsmenn á heimsvísu, þar af 250 á Íslandi, býður upp á sveigjanlegan vinnutíma og starfsþróunarmöguleika.

Sjá nánar: cowi.com

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →