Stólpi og Hafnarfjarðarbær byggja 260 íbúðir fyrir erlent starfsfólk
Stólpi og Hafnarfjarðarbær hafa hafið samstarf um þróun og uppbyggingu á um tíu hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði. Samkomulagið er gert milli Styrkáss Fasteigna ehf., systurfélags Stólpa, og Hafnarfjarðarbæjar. Verkefnið felur í sér allt að 130 húseiningar með u
Stólpi og Hafnarfjarðarbær hafa hafið samstarf um þróun og uppbyggingu á um tíu hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði. Samkomulagið er gert milli Styrkáss Fasteigna ehf., systurfélags Stólpa, og Hafnarfjarðarbæjar. Verkefnið felur í sér allt að 130 húseiningar með um 260 íbúðum, ætlaðar til tímabundinnar búsetu fyrir starfsfólk í verkefnatengdri vinnu. Húsin eru hönnuð af Batteríinu Arkitektum og byggð með einingalausnum frá tékkneska fyrirtækinu KOMA MODULAR. Stólpi mun hafa umsjón með uppsetningu og útleigu húsnæðisins.
Skipulagslýsing skal liggja fyrir 1. október 2026. Stefnt er að auglýsingu deiliskipulagstillögu í febrúar 2027 og að skipulagsferlinu ljúki í maí sama ár.
Uppbyggingin fer fram í tveimur áföngum. Fyrri áfanginn gerir ráð fyrir 50 húsum með 100 íbúðum og sá síðari 80 húsum með 160 íbúðum.
Stólpi hefur um árabil unnið að þróun og framleiðslu húseininga og hefur áður byggt leikskóla og lögreglustöð úr slíkum einingum.