Byggingarréttur í Suðurhólum og Hraunbergi
Reykjavíkurborg býður út byggingarrétt á tveimur íbúðarhúsalóðum í Breiðholti, Suðurhólum 27 og Hraunbergi 1. Á lóðunum er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum með áherslu á vandað útlit og grænt umhverfi.
Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarrétt á tveimur íbúðarhúsalóðum í Breiðholti, Suðurhólum 27 og Hraunbergi 1.
Á lóðinni Suðurhólar 27 er gert ráð fyrir raðhúsi og sérhæðum á tveimur til þremur hæðum, með allt að 40 íbúðum. Áhersla er lögð á vandaðan arkitektúr, grænt yfirbragð og gæði íbúða, auk þess sem unnið er með landslag og form þess. Byggðin verður aðlögunarhæf og mun vistgata liðast um svæðið, sem skilur eftir grænt og barnvænt umhverfi.
Á lóðinni Hraunberg 1 er gert ráð fyrir tveimur íbúðakjörnum. Annar kjarninn mun innihalda 4-6 íbúðir en hinn 12-16 íbúðir, ásamt þjónustu-, verslunar- eða samfélagsrými og bílastæðum á jarðhæð.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 9. október 2026. Nánari upplýsingar um lóðirnar og útboðsskilmála er að finna á útboðsvef borgarinnar.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Reykjavíkurborg
Heimild: Reykjavíkurborg