Byggingafélög sitja uppi með óseldar nýjar íbúðir
Nýjar íbúðir standa óseldar í stórum stíl á landinu, en hátt í 2.000 nýjar íbúðir voru tómar og óseldar í september samkvæmt talningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS). Alls eru um 6.800 íbúðir til sölu, sem er um þriðjungi fleira en um áramótin.

Kaupsamningar í ágúst voru þeir fæstu í tólf ár, samkvæmt skýrslu HMS sem birt var í dag. Byggingafélög bera mikinn fjármagnskostnað af óseldum íbúðum, auk byggingarkostnaðar.
Sum byggingafélög hafa reynt að leigja út nýjar íbúðir sem ekki hafa selst. Leigumarkaðurinn hefur þó einnig kólnað, sem gerir útleigu erfiðari.
Að sögn Vignis Más Lýðssonar, stofnanda og framkvæmdastjóra Igloo, sem rekur leigusíðu, henta nýjar íbúðir oft ekki í leigu.
→ Lesa á RÚV