Búið að rífa á þriðja tug ónýtra húsa í Grindavík
Verktaki segir að vinna við að fylla upp í sprungur og rífa ónýt hús í Grindavík gangi vel. Tuttugu og tvö af þrjátíu og fimm húsum hafa verið fjarlægð.
Verktaki greinir frá því að vinna við að fylla upp í sprungur og rífa ónýt hús í Grindavík gangi vel. Tuttugu og tvö af þrjátíu og fimm húsum hafa verið rifin.
„Þetta er búið að ganga mjög vel. Við erum staddir í Stamphólsgjánni og erum að gera við hana og erum komnir hérna fram hjá íþróttahúsinu og Salthúsinu. Við erum komnir hérna talsvert upp fyrir, erum að nálgast fimmtíu blokkina sem er kölluð. Það er talsverð sprunga hérna sem við þurfum að fylla upp í og opna,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, eigandi verktakafyrirtækisins Jón og Margeir.
Stamphólsgjá er ein af dýpstu og stærstu sprungunum sem liggja undir bænum og segir Jón Gunnar að framkvæmdir vegna hennar hafi verið ein helsta áskorunin hingað til.
Samkvæmt mælingum ÍSOR er gjáin allt að þrír metrar að breidd og rúmlega þrjátíu metra djúp.
Heimild: RÚV