BSO húsið komið á framtíðarstaðinn

BSO húsið, sem lengi hýsti leigubílstjóra á Akureyri, hefur verið flutt að Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit.

BSO húsið komið á framtíðarstaðinn
Mynd: Braggi.is

BSO húsið, sem lengi hýsti leigubílstjóra á Akureyri, hefur verið flutt af lóð sinni á horni Strandgötu og Glerárgötu til Jólagarðsins í Eyjafjarðarsveit. Flutningurinn fór fram í gærkvöldi, þar sem húsið var híft á vagn og dregið af vörubíl.

Lögregla fylgdi flutningnum eftir vegna breiddar hússins, og þurfti að stöðva aðra umferð á meðan. Ferðin gekk samkvæmt áætlun og hefur húsinu nú verið komið fyrir á bílastæðinu við Jólagarðinn. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um nákvæma staðsetningu hússins á svæðinu þegar starfsemi hefst á ný. Jólagarðurinn fékk BSO húsið að gjöf.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net

Heimild: Akureyri.net

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →