Brúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun lokuð vegna viðgerðar
Brúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun er lokuð vegna óhapps þar sem steypubíll ók út af brúnni í kvöld. Viðgerðir munu standa yfir fram á morgun.
Brúin yfir Þjórsá við Sultartangavirkjun á Þjórsárdalsvegi (vegur nr. 32) er lokuð vegna viðgerðar eftir að steypubíll ók út af henni í kvöld. Ökumanninum var bjargað með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Grétari Einarsyni, verkstjóra í þjónustustöð Vegagerðarinnar á Selfossi, er gert ráð fyrir að lokunin standi út morgundaginn. Vegfarendur á leið til Landmannalauga, Sprengisands eða Veiðivatna þurfa því að fara aðra leið, sem er um Landveg.
Óhappið varð á áttunda tímanum í kvöld og hafnaði steypubíllinn í ánni. Hluti af brúargrindinni skemmdist í atvikinu, sem er ástæða lokunarinnar þar til viðgerð er lokið.
Heimild: RÚV