Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur

Hringvegurinn um Borgarnes verður lokaður í tvær nætur vegna fræsingar á brúnni yfir Borgarfjörð. Einnig verður brúin yfir Jökulsá á Fjöllum að mestu lokuð alla virka daga fram í miðjan september.

Brúin yfir Borgarfjörð lokuð í tvær nætur
Mynd: Braeson Holland / Pexels

Hringvegurinn í gegnum Borgarnes, frá Borgarbraut að brúnni yfir Borgarfjörð, verður lokaður í kvöld, sunnudag, frá klukkan níu til sjö í fyrramálið vegna fræsingar.

Sama lokun verður einnig annað kvöld og fram á þriðjudagsmorgun. Hjáleið um Borgarfjarðarbraut er merkt sunnan við brúna.

Vegagerðin vekur athygli á að víða um land standa yfir viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir. Vegfarendur mega búast við steinkasti og hugsanlegum töfum vegna þessa. Hraði er tekinn niður á flestum vinnusvæðum og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitsemi, og halda 50 metra bili milli bíla til að draga úr líkum á skemmdum vegna steinkasts.

Þá verður brúin yfir Jökulsá á Fjöllum að mestu lokuð alla virka daga frá og með morgundeginum og fram til miðjan september. Bílum verður hleypt yfir nokkrum sinnum á dag. Brúin verður opin um helgar og á kvöldin frá klukkan 19 til átta á morgnana.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn