Brúin lokuð fram eftir vikunni

Brúin yfir Þjórsá við Sultartanga er lokuð fram eftir viku vegna skemmda á handriði eftir að steypubíll ók fram af henni í gærkvöldi. Vegagerðin leggur kapp á að ljúka viðgerðum sem fyrst.

Brúin lokuð fram eftir vikunni
Mynd: momentsbymanan / Pexels

Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi við Sultartanga hefur verið lokað vegna skemmda á brúarhandriði. Skemmdirnar urðu í gærkvöldi þegar steypubíll ók fram af brúnni.

Vegagerðin greinir frá því að viðgerðir muni taka nokkra daga og því verði leiðin lokuð eitthvað fram eftir vikunni. Allt kapp er lagt á að ljúka viðgerðum eins fljótt og auðið er.

Hjáleið er um Landveg.

→ Lesa upprunaleg grein á Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →