Brú yfir Hornafjarðarfljót opnuð
Nýr vegur um Hornafjarðarfljót hefur verið opnaður og styttir Hringveginn um tólf kílómetra. Vegjöld munu standa undir hluta kostnaðar brúarinnar, en upphæðin hefur komið bæjarbúum á óvart.
Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra í dag með opnun nýs vegar um Hornafjarðarfljót. Alls voru byggðir 28 kílómetrar af nýjum vegum og fjórar tvíbreiðar brýr. Þá var tekið í notkun nýtt hringtorg sem tengir Hringveginn við Hafnarveg og Nesjahverfi.
Verklokum seinkaði nokkuð frá upphaflegri áætlun, en brúin átti að opna í desember í fyrra. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, útskýrir að ákvörðun hafi verið tekin um að fresta verklokum vegna veðuraðstæðna, til að tryggja gæði mannvirkisins.
Veggjöld munu standa undir hluta kostnaðar brúarinnar. Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornarfjarðar, segir að veggjöld komi ekki á óvart sem slík, en upphæðin hafi komið bæjarbúum á óvart. Stök ferð yfir brúna mun kosta 1.500 krónur.
Heimild: RÚV