Breytingar á Jöfnunarsjóði bitna á Borgarbyggð
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar stenst ekki og framkvæmdum hefur verið frestað vegna lægri framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga en upphaflega var gert ráð fyrir. Sveitarstjóri lýsir undrun sinni á þessari þróun.
Lægri framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga hafa orðið til þess að fjárhagsáætlun Borgarbyggðar stenst ekki og því hefur þurft að fresta framkvæmdum.
Sveitarstjóri Borgarbyggðar, Unnur Brá Konráðsdóttir, segist undrandi á þessari þróun þar sem breytingar á Jöfnunarsjóði áttu að styrkja rekstur víðfeðmra sveitarfélaga eins og Borgarbyggðar.
„Eins og þetta var kynnt fyrir okkur þá gerðum við ráð fyrir aukningu framlaga til sveitarfélagsins en raunin er sú að það er samdráttur í framlögum, og sveiflan er um 300 milljónir,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir.
Framlög úr Jöfnunarsjóði nema um 30% af skatttekjum Borgarbyggðar. Ný lög um Jöfnunarsjóð voru samþykkt í fyrra sumar. Unnur segir þetta ganga þvert á það sem kynnt var þegar frumvarpið fór í gegnum þingið.
„Lögin voru með það markmið að styrkja rekstrarforsendur víðfeðmra fjölkjarna sveitarfélaga á borð við Borgarbyggð og það er það sem við unnum út frá þegar frumvarpið var til meðferðar á þinginu,“ segir Unnur.
Áður en lögin voru samþykkt var áhrif þeirra á sveitarfélögin metin. Samanburðarárið var 2024. Í áhrifamati laganna var þá gert ráð fyrir að tekjur A-hluta reksturs Borgarbyggðar myndu aukast um 177,7 milljónir. Nú er ljóst að þær lækka þess í stað miðað við 2024.
Unnur segir fleiri sveitarfélög fá minna en búist var við en staða Borgarbyggðar sé sérstaklega slæm.
„Okkar áætlanir varðandi tekjuhliðina eru þess vegna ekki að standast,“ segir Unnur. „Um leið og þessar fréttir komu var sett stopp á ákveðnar framkvæmdir. Það átti að ráðast í viðbyggingu við leikskóla sem átti að fara fram á þessu ári en fyrrverandi sveitarstjórn ákvað að stoppa það verkefni af.“
Heimild: RÚV