Borgarverk jarðvegsskiptir við Stóra Hraun
Borgarverk ehf. hefur undirritað verksamning um jarðvegsframkvæmdir fyrir nýtt fangelsi við Stóra-Hraun og stefnir á að hefja störf strax í þessari viku. Fyrirtækið átti lægsta tilboðið í verkið sem hljóðaði upp á tæplega 993 milljónir króna.
Verksamningur um jarðvegsframkvæmdir fyrir nýtt fangelsi við Stóra-Hraun hefur verið undirritaður við Borgarverk ehf.
Fyrirtækið stefnir á að hefja framkvæmdir á verkstað strax í þessari viku. Borgarverk ehf. átti lægsta tilboðið í verkið, sem hljóðaði upp á tæplega 993 milljónir króna.
Alls bárust sjö tilboð í jarðvegsframkvæmdirnar. Fangelsið mun rísa við hlið Litla-Hrauns.
Óskar Jósefsson, forstjóri FSRE, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu, og Atli Þór Jóhannsson, framkvæmdastjóri Borgarverks, undirrituðu verksamninginn.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn