Borgarbyggð, Veitur og Rarik bjóða út gatnaframkvæmdir á Bröttugötu í Borgarnesi
Borgarbyggð, Veitur og Rarik óska eftir tilboðum í gatnaframkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi, með skilafrest þann 5. júní 2026.
Borgarbyggð, Veitur og Rarik auglýsa útboð vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Bröttugötu í Borgarnesi. Um er að ræða gatna- og gangstéttargerð og lagningu dreifikerfis fyrir fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og rafveitu. Endurnýja skal yfirborð götu, bílastæði og gangstéttir.
Helstu magntölur eru uppgröftur 1.760 m3, fylling 310 m3, styrktarlag 1.100 m3, burðarlag 210 m3, malbik 1.100 m2 og steyptar gangstéttir 390 m2.
Verkið felst í að leggja dreifikerfi fráveitu (240 m), vatnsveitu (245 m) og hitaveitu (320 m) fyrir Veitur ohf. samhliða gatnagerð. Lagnaskurðir eru 1.360 m³.
Einnig felst verkið í að grafa lagnaskurði, verja eldri lagnir, niðurtekt og uppsetning tengiskápa (2 stk.) og ganga frá í kringum strengi í skurði. Rarik mun sjá um að leggja strengi og jarðvíra í skurði (210 m) ásamt því að sjá um tengivinnu.
Útboðsnúmerið er 2510327. Útboðsgögn verða afhent 19. maí 2026 kl. 13:00. Skilafrestur er 5. júní 2026 kl. 09:55 og opnun tilboða fer fram 5. júní 2026 kl. 10:00.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is