Björgunarmiðstöðin á Borg rís
Burðarvirki úr límtré hefur verið reist fyrir nýja, rúmlega 1.100 fermetra björgunarmiðstöð við Þinggerði 1 á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdin er á vegum sveitarfélagsins, Brunavarna Árnessýslu og Hjálparsveitarinnar Tintron, en verkt
Burðarvirki úr límtré hefur verið reist fyrir nýja, rúmlega 1.100 fermetra björgunarmiðstöð við Þinggerði 1 á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Framkvæmdin er á vegum sveitarfélagsins, Brunavarna Árnessýslu og Hjálparsveitarinnar Tintron, en verktakafyrirtækið HR smíði sér um verkið og fær burðarvirkið frá Límtré Vírneti. Stefnt er að því að húsinu verði skilað fokheldu í desember 2026.
Nú er unnið að frágangi burðarvirkisins en næst verða útveggir og þak klædd með stálklæddum steinullareiningum. Milligólf hússins er úr límtré og verða tveir bogadregnir gluggar í mæni til að hleypa dagsbirtu í bílasali. Útlit hússins verður með dökkgrárri klæðningu ásamt rauðum hurðum og gluggum. Á lóðinni rís einnig sérstakt stakstætt hús fyrir tæknibúnað, þar á meðal vararafstöð, veituinntök og loftpressu.
Mannvirkið skiptist í tvo tveggja hæða hluta með sitthvorum bílasalnum. Hluti Brunavarna Árnessýslu mun hýsa búningsklefa og sturtur á neðri hæð ásamt eldhúsaðstöðu og fundarsal á þeirri efri. Í rými Tintron verða setustofa, búningsaðstaða og búnaðarrými á neðri hæð, en á efri hæð verður aðstaða fyrir aðgerðastjórnun, fundi og unglingastarf. Með byggingunni fær slökkviliðið sína fyrstu bækistöð á Borg.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Grímnes- og Grafningshreppur
Heimild: Grímnes- og Grafningshreppur