BIM Ísland boðar til ráðstefnu um stafræna mannvirkjagerð með áherslu á gervigreind

Ljósmynd: energepic.com / Pexels
Ljósmynd: energepic.com / Pexels

BIM Ísland stendur fyrir árlegri ráðstefnu sinni, Degi stafrænnar mannvirkjagerðar, þann 8. maí næstkomandi í Silfurbergi, Hörpu. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því hvernig stafrænar umbreytingar geta aukið virðissköpun og hagrætt í hönnun, framkvæmdum og rekstri mannvirkja, með sérstakri áherslu á gervigreind.

Í ár er lögð áhersla á sameiginlegan grunn stafrænnar mannvirkjagerðar, þ.e. kröfur, verklýsingar og gögn, samhliða notkun gervigreindar í hönnun og greiningu. Ráðstefnan er ætluð öllum aðilum í mannvirkjagerð, þar á meðal hönnuðum, verktökum, verkkaupum og rekstraraðilum. Undanfarin ár hafa 250 til 300 manns sótt viðburðinn.

BIM Ísland, sem nýlega stofnaði buildingsmart Iceland einingu, hefur það að markmiði að vera leiðandi samráðsvettvangur í þróun og innleiðingu stafrænnar tækni í íslenskri mannvirkjagerð.

Sjá nánar: tix.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →