Bílaklúbburinn ekki sáttur við skerðingu
Bæjarstjórn Akureyrar tekur í dag til afgreiðslu skipulagstillögu um stækkun lóðar gagnaversfyrirtækisins atNorth við Hlíðarvelli, þrátt fyrir ófrágengin samkomulög við Bílaklúbb Akureyrar um áhrif framkvæmdarinnar á starfsemi klúbbsins. Stækkun lóða
Bæjarstjórn Akureyrar tekur í dag til afgreiðslu skipulagstillögu um stækkun lóðar gagnaversfyrirtækisins atNorth við Hlíðarvelli, þrátt fyrir ófrágengin samkomulög við Bílaklúbb Akureyrar um áhrif framkvæmdarinnar á starfsemi klúbbsins. Stækkun lóðar atNorth mun hafa í för með sér að lóð Bílaklúbbs Akureyrar minnkar, sem hefur áhrif á tjaldsvæði klúbbsins og framtíðaráform um lengingu spyrnubrautar til austurs.
Einar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Bílaklúbbs Akureyrar, lýsir yfir áhyggjum af því að hagsmunir klúbbsins víki vegna stækkunar gagnaversins. Hann er sérstaklega ósáttur við að skipulagsráð hafi vísað málinu áfram til bæjarstjórnar áður en lokið hefur verið við samninga um uppbyggingu nýs tjaldsvæðis fyrir klúbbinn og fjármögnun þess. Skipulagsráð samþykkti þann 14. október að mæla með breytingum á deiliskipulagi athafnasvæðisins við Hlíðarvelli og svæðis akstursíþrótta og skotæfinga á Glerárdal.
Í bókun ráðsins kemur fram að samkomulag við Bílaklúbb Akureyrar um minnkun lóðar vegna nýs reiðstígs, sem færist inn fyrir lóðarmörk klúbbsins, þurfi að liggja fyrir áður en lóðum verður úthlutað til atNorth. Einar bendir á að samkomulagið þurfi að taka skýrt á uppbyggingu nýs tjaldsvæðis og fjármögnun framkvæmdanna.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Akureyri.net
Heimild: Akureyri.net