Biðskýli við Nesveg fjarlægt tímabundið
Biðskýli við Nesveg andspænis Eiðistorgi verður fjarlægt tímabundið vegna framkvæmda við lóðarvegg fyrir nýjan leikskóla. Strætisvagnar munu halda áfram að stoppa á sama stað á meðan.
Biðskýli við Nesveg, andspænis Eiðistorgi, verður fjarlægt tímabundið þann 5. ágúst. Ástæðan eru framkvæmdir við lóðarvegg fyrir nýjan leikskóla sem rís á horni Nesvegar og Suðurstrandar.
Framkvæmdin er áætluð í um sex vikur. Biðskýlinu verður komið fyrir aftur um leið og veggurinn hefur risið.
Strætisvagnar munu halda áfram að stoppa á sama stað og venjulega á meðan framkvæmdir standa yfir.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Seltjarnarnesbær
Heimild: Seltjarnarnesbær