Baugur Bjólfs vekur athygli á alþjóðavettvangi

Útsýnispallurinn Baugur Bjólfs, sem staðsettur er á Bæjarbrún í suðurhlíðum Bjólfsfjalls á Seyðisfirði, er meðal þeirra 20 verkefna sem dómnefnd Archello verðlaunanna 2026 hefur valið á svokallaðan „longlista“ í flokki almenningsrýma ársins. Þetta er

Baugur Bjólfs vekur athygli á alþjóðavettvangi
Mynd: pixabay.com / other / Pexels

Útsýnispallurinn Baugur Bjólfs, sem staðsettur er á Bæjarbrún í suðurhlíðum Bjólfsfjalls á Seyðisfirði, er meðal þeirra 20 verkefna sem dómnefnd Archello verðlaunanna 2026 hefur valið á svokallaðan „longlista“ í flokki almenningsrýma ársins. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem mannvirkið hlýtur alþjóðlega viðurkenningu, en nýlega var það einnig tilnefnt til Dezeen verðlaunanna. Baugurinn, sem er í 640 metra hæð yfir sjávarmáli og býður upp á einstakt útsýni yfir Seyðisfjörð, er hannaður sem ferðalag þar sem upplifunin þróast í hverju skrefi, öfugt við hefðbundna útsýnispalla. Hönnun hans, efnisval og framkvæmd eru ítarlega kynnt á vef Archello verðlaunanna, þar sem lögð er áhersla á einfalda hringlaga lögun sem sameinar form, virkni og upplifun.

Aðalhönnuðir Baugs Bjólfs voru Ástríður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir frá Arkibygg Arkitektum. Verkefnið var unnið í samvinnu við landslagsarkitektana Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Kjartan Mogensen, Auði Hreiðarsdóttur frá ESJA ARCHITECTURE og Arnar Björn Björnsson frá Exa Nordic sem sá um burðarvirkjahönnun. Framkvæmdir voru í höndum MVA á Egilsstöðum. Í haust hefur verið unnið að því að bæta aðkomuna að útsýnispallinum. Bílastæði hafa verið formgerð og jöfnunarlag sett á þau, auk þess sem unnið er að lagfæringum á veginum. Upplýsingaskiltum hefur verið komið upp, yfirborðslag lagt á göngustíga og unnið er að því að koma upp snyrtilegu setsvæði við bílastæðin, sem felur í sér hlaðinn vegg og hellulögn.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Múlaþing

Heimild: Múlaþing

Deila Facebook X LinkedIn