Bara piss, kúk og klósettpappír í salernið
Tæp fimmtíu tonn af rusli eru hreinsuð frá skólpi hjá Norðurorku á Akureyri árlega. Blautklútar, eyrnapinnar og tannþráður eru meðal þess sem veldur mestum usla í hreinsibúnaði og lögnum.
Tæp fimmtíu tonn af rusli eru hreinsuð frá skólpi hjá Norðurorku á Akureyri árlega. Allt sem fer ofan í niðurfall eldhúsvasksins, sturtunnar eða klósettsins hjá Akureyringum endar í hreinsistöð í Sandgerðisbótinni þar sem því er sigtað og hreinsað.
Blautklútar eru taldir vera stærsti skaðvaldurinn og geta þeir valdið miklum skemmdum á bæði hreinsibúnaði og lögnum. „Þetta er helst blautklútarnir, það er stærsta vandamálið. Síðan eru þetta eyrnapinnar, tannþráður, tannþráðurinn er töluvert vandamál. Og í rauninni allt sem fer í salernið kemur hingað niðureftir ef það leysist ekki upp á leiðinni,“ segir Stella Árnadóttir, umhverfis- og öryggisstjóri hjá Norðurorku.
Þessi hreinsun er nauðsynleg til að tryggja eðlilega starfsemi skólpskerfisins og koma í veg fyrir óviðgerðarlegar skemmdir á búnaði.
Heimild: RÚV