Bandarískt fyrirtæki byggir stálverksmiðju í Iowa
Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær áætlanir um byggingu stærstu stálverksmiðju Bandaríkjanna í Iowa. Fyrirtækið Mesabi Metallics mun reisa verksmiðjuna, sem er metin á 15 milljarða dollara.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær áætlanir um byggingu stálverksmiðju í Iowa. Forsetinn sagði að þetta yrði stærsta stálverksmiðja Bandaríkjanna nokkurn tímann.
Fyrirtækið Mesabi Metallics mun reisa verksmiðjuna og er framkvæmdin metin á 15 milljarða dollara. Málmgrýti verður unnið úr nýrri námu fyrirtækisins í Minnesota, sem er fyrsta slíka náman í Bandaríkjunum í fimmtíu ár.
Þingkosningar verða í nóvember og er Iowa mikilvægt fylki fyrir Repúblikana. Vonir eru bundnar við að tilkynningin um stálverksmiðjuna sendi jákvæð skilaboð til kjósenda Repúblikana, í ljósi vaxandi reiði vegna hækkandi framfærslukostnaðar og stríðsins við Íran.
Heimild: RÚV