Baldur snýr aftur í Breiðafjörð þegar Herjólfur verður kominn í lag
Viðgerð á rafmótor Herjólfs gengur vel og er gert ráð fyrir að Baldur sinni siglingum milli lands og Vestmannaeyja á meðan skipið verður tekið af áætlun í allt að fjóra sólarhringa vegna uppsetningar á nýjum mótor.
Viðgerð á rafmótor Herjólfs á verkstæði í Hollandi miðar vel og er stefnt að því að henni ljúki um miðjan júlí. Tafir á afhendingu koparvírs höfðu áður dregið viðgerðina á langinn. Þegar viðgerð lýkur verður Herjólfur tekinn af áætlun í allt að fjóra sólarhringa vegna uppsetningar á nýjum mótor.
Á meðan á þeirri vinnu stendur mun ferjan Baldur sinna átta ferðum milli lands og Vestmannaeyja. Baldur mun svo snúa aftur til siglinga í Breiðafirði um leið og Herjólfur verður kominn í fullan rekstur. Undanfarnar vikur hefur Baldur sinnt siglingum með Herjólfi til að mæta aukinni umferð milli lands og Eyja.
Eftir að Herjólfur kemst aftur í fullan rekstur mun skipið sigla hefðbundna átta ferða áætlun til og með 23. ágúst. Eftir það tekur við sjö ferða áætlun. Þetta greindi Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., frá í færslu á Facebook-síðu Herjólfs.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Eyjafréttir
Heimild: Eyjafréttir