Bakkað ef fólk hefur nógu hátt og kærir nógu mikið

Framkvæmdastjóri Samhjálpar gagnrýnir úrskurð um að fella byggingarleyfi fyrir kaffistofu samtakanna við Grensásveg úr gildi og segir hann staðfesta að mótstaða við samfélagsþjónustu hafi aukist. Hún telur að úrskurðurinn hafi ekki tekið mið af hlutlægum forsendum heldur notendum þjónustunnar.

Bakkað ef fólk hefur nógu hátt og kærir nógu mikið
Mynd: Алексей Вечерин / Pexels

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir að andstaða við samfélagslega þjónustu hafi farið vaxandi undanfarin ár og telur synjun á byggingarleyfi fyrir kaffistofu samtakanna í Reykjavík vera birtingarmynd þess. Hún bendir á að þegar Konukot var flutt hafi verið úrskurðað að grenndarkynning dygði, en öðruvísi hafi verið farið að með kaffistofu Samhjálpar. „Hér er hins vegar að mínu mati hvorki viðhaft meðalhóf né jafnræðisregla vegna þess að það er ekki verið að meta hlutlægt notkunina á húsinu heldur er verið að meta notendurna og það er ekki jafnræði í því,“ sagði Guðrún Ágústa í Morgunútvarpinu á Rás 2.

Hún útskýrði að það sé þekkt að mikil andstaða sé við félagslega þjónustu í hverfum þegar unnið er að því að setja hana upp. Þessi andstaða hafi sést vel þegar Geðhjálp taldi sig knúna til að selja hús sem hún hafði keypt til að bjóða upp á þjónustu. „Þessi úrskurður staðfestir að ef þú lætur nógu hátt, ef þú kærir nógu mikið, þá er bakkað. Hvernig eigum við þá að geta verið með þjónustu við einstaklinga? Fólkið sem kemur sem gestir á kaffistofu Samhjálpar er bara fólk eins og ég og þið. Við erum bara einu áfalli frá því að þurfa á þjónustu kaffistofunnar að halda,“ sagði Guðrún Ágústa.

Guðrún Ágústa ræddi við borgarstjóra og oddvita meirihlutaflokkanna í Reykjavík í gær um stöðuna sem komin er upp eftir að byggingarleyfi fyrir kaffistofu samtakanna við Grensásveg var fellt úr gildi. Hún segir oddvitana vera að yfirfara gögn og að engin ákvörðun hafi verið tekin um framhaldið.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →