„Ástandið minnir mann svolítið á Miðgarðsorminn sem étur skottið á sér“
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, lýsir ástandi verðbólgu sem hringavitleysu og líkir því við Miðgarðsorminn sem étur skottið á sér.
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir aukna verðbólgu hafa bein og margvísleg áhrif á neytendur. Nýjustu mælingar, sem sýna 5,6% verðbólgu, koma því miður ekki á óvart.
Viðvarandi verðbólgu og tilraunum til að ráða niðurlögum hennar líkir Breki við hringavitleysu. „Ástandið minnir mann svolítið á Miðgarðsorminn sem étur skottið á sér, eða hvaða aðra líkingu sem menn vilja nota um svona hringavitleysu,“ segir hann.
Breki segir það „stappa nærri galskap“ að gera alltaf það sama og búast við nýrri niðurstöðu, sérstaklega þegar kemur að því að nota stýrivaxtahækkanir til að berjast við verðbólguna.
Í nýjustu mælingum hækkar reiknuð húsaleiga. Breki bendir á að þetta megi rekja til hækkunar stýrivaxta Seðlabankans, sem eigi að berjast við verðbólguna. „Þar af leiðir að stýrivextirnir eru þar með að ganga gegn megintilgangi sínum. Það að gera alltaf sama hlutinn aftur og aftur og búast við nýrri niðurstöðu stappar nærri galskap – og er eiginlega skilgreiningin á galskap,“ segir hann.
Aukin verðbólga hefur bein áhrif á neytendur í formi hækkaðs vöruverðs. „Verðskyn verður að engu. Þetta hefur margvísleg áhrif. Það er ótal margt sem er tengt verðbólgunni á Íslandi. Við erum með verðtryggð lán, verðtryggða húsaleigu og verðtryggða aðra samninga. Þetta hækkar bara og hækkar.“
Breki segir að oft sé talað um að íslenskt hagkerfi búi við mikinn sveigjanleika, en þetta háa verðbólgustig sé afleiðing hans.
Hann hvetur stjórnvöld og aðra til að halda aftur af verðhækkunum. „Ég er hræddur um það að verði ekki gripið fast og sterkt inn í strax þá sjái sér einhverjir leik á borði og sleppi af sér beislinu. Gefi verðbólgunni lausan tauminn.“
Heimild: RÚV