Ásgarðslaug lokuð vegna viðhalds 27. -31. júlí
Ásgarðslaug í Garðabæ verður lokuð vegna árlegs viðhalds dagana 27. til 31. júlí. Sundgestum er bent á að nýta Álftaneslaug á meðan.
Ásgarðslaug í Garðabæ verður lokuð vegna árlegs viðhalds frá mánudeginum 27. júlí til föstudagsins 31. júlí.
Viðhaldsverkefnin ná til sundlaugarinnar sjálfrar og sundklefa sem verða ekki aðgengilegir á meðan framkvæmdir standa yfir. Þetta er liður í reglubundnu viðhaldi á mannvirkinu.
Á meðan á lokuninni stendur verður hægt að nýta ræktaraðstöðu í íþróttamiðstöðinni Ásgarði, með aðgengi að búningsklefum á klefagangi. Íbúum og öðrum sundgestum er bent á að Álftaneslaug verður opin eins og venjulega þessa daga.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær
Heimild: Garðabær