Alvarlegar áhyggjur af brunahólfandi hurðum – Vantar gögn fyrir 80% tilvika
Fyrstu niðurstöður markaðseftirlits Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) með brunahólfandi innihurðum vekja alvarlegar áhyggjur. Rekstraraðilar hafa ekki skilað gögnum fyrir um 80% þeirra hurðagerða sem markaðssettar eru hér á landi.
Heimild: Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)