Aldrei bæst eins mikið við af endurnýjanlegri orku
Ný skýrsla Alþjóðastofnunar um endurnýjanlega orku (IRENA) sýnir að aldrei hefur eins mikið af nýrri endurnýjanlegri orku bæst við á heimsvísu og árið 2025. Samkvæmt henni bættust 693 gígavött af nýrri endurnýjanlegri orku við á heimsvísu árið 2025.
Markaðsöflin knýja nú umskipti yfir í hreina, endurnýjanlega orkugjafa með slíkum krafti að ekki verður aftur snúið. Þetta segir Simon Stiell, loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, í tilefni af birtingu nýrrar skýrslu Alþjóðastofnunar um endurnýjanlega orku (IRENA).
Samkvæmt skýrslunni bættust 693 gígavött af nýrri endurnýjanlegri orku við á heimsvísu árið 2025. Aldrei hefur annað eins magn orkugetu bæst við á einu ári, en þetta samsvarar meira en helmingi allrar raforkuframleiðslugetu Bandaríkjanna.
Til að ná markmiði um að þrefalda framleiðslugetu endurnýjanlegrar orku fyrir árið 2030, sem ríki heims komu sér saman um á loftslagsráðstefnunni COP28 árið 2023, þarf þó enn að bæta í. Heildarframleiðslugetan er nú rúm 5 teravött, en ef þróunin heldur áfram af sama krafti og á síðasta ári verður hún komin upp í 10,6 teravött árið 2030, sem er rétt undir 11,2 teravatta takmarkinu frá 2023.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að endurnýjanleg orka var áfram hagkvæmasti kosturinn við uppbyggingu nýrrar raforkuframleiðslu á flestum mörkuðum árið 2025. „Kraftur markaðsaflanna er að festa sig í sessi,“ sagði Stiell. „Umskiptin yfir í hreina orku eru nú óumflýjanleg.“
Í skýrslunni eru meðal annars lagðar til fjárfestingar í dreifikerfum raforku og geymslu á rafmagni framleiddu með sólar- og vindorku til að tryggja hagkvæma raforku allan sólarhringinn.
David Waskow hjá hugveitunni World Resources Institute segir þó að jákvæðu fréttirnar verði að skoða í ljósi þess að endurnýjanleg orka hafi enn ekki komið nægilega mikið í stað jarðefnaeldsneytis, á sama tíma og orkuþörf heimsins eykst. Meðal þess sem kalli á meiri orku sé kæling híbýla í hlýnandi heimshluta.
Heimild: RÚV